
Jarðhitasvæðið er á sunnanverðri Reykjaheiði milli Lambafjalla í vestri og Þeistareykjabungu í austri, að stórum hluta á flatlendi í um 300 m hæð. Yfirborðshiti nær þó í 530 m hæð í Bæjarfjalli og tæplega 500 m hæð í Ketilfjalli. Næsta umhverfi jarðhitasvæðisins er þakið hraunum sem aðallega hafa runnið á nútíma. Virkur jarðhiti er á um 11 km² svæði og er virkasta svæðið umhverfis norðanvert Bæjarfjall. Auk þess er ummyndað svæði austan Lambafjalla.
Yfirborðsummerki jarðhita á Þeistareykjum eru dæmigerð fyrir háhitasvæði. Þar má finna bullandi leirhveri, gufuaugu, brennisteinsþúfur og ummyndun. Vatnshverir eru engir.
Heimild: Halldór Ármannsson, ÍSOR.