Hoppa í aðalefni

Jarðhiti

Lághiti

Þar sem hiti er lægri en 150°C á 1–3 km dýpi er talað um lághitasvæði.

Lághitasvæði

Lághitasvæði landsins eru utan við virka gosbeltið sem nær frá Reykjanestá norður um landið út í Öxarfjörð. Þau ná frá jöðrum gosbeltanna, út um allt land og út á landgrunnið. Þó má ná ágætis lághitavatni innan gosbeltisins, til húshitunar, garðyrkju eða fiskeldis.

Lághitarannsóknir

Leit að heitu vatni á lághitasvæðum gengur út á að finna heitt vatn á sem ódýrastan hátt, enda keppir lághitavatn við aðra orkugjafa til húshitunar. Samanlagður jarðhitaleitar- og vinnslukostnaður má ekki fara yfir ákveðið hámark á ásættanlegum afskriftatíma.

Með breyttri tækni í jarðborunum hefur þróast ný leitartækni hjá ÍSOR sem kölluð er jarðhitaleit á köldum (þurrum) svæðum. Hún byggist á fjölda viðnámsmælinga eða borun margra 50–60 m djúpra ódýrra hitastigulsholna til að finna hvar grynnst er á nýtanlegan jarðhita, helst yfir 60°C.