Vatnsorka, vindorka, sólarorka og haforka eru góð dæmi um endurnýjanlegar orkulindir. Jarðefnaeldsneyti — olía, kol og jarðgas — telst ekki endurnýjanlegt því jarðefnin endurnýjast ekki við vinnslu. Lífmassi til brennslu, svo sem trjáviður, telst endurnýjanlegur ef skóglendi er ræktað jafn hratt og það er höggvið.
Jarðhiti er endurnýjanleg orkulind
Jarðhitinn er skilgreindur alþjóðlega sem endurnýjanleg orkulind. Talið er að einungis um 0,1% hennar þyrfti til að anna núverandi heildarorkuþörf mannkyns í um 10.000 ár. Jarðhita er þó unnt að nýta bæði á sjálfbæran og ósjálfbæran hátt.