Vefur ÍSOR er hannaður og smíðaður með aðgengi að leiðarljósi svo sem flestir geti nýtt hann, þar á meðal fólk sem notar skjálesara, lyklaborð eingöngu eða stækkun.
Samræmi við staðla
Stefnt er að því að vefurinn uppfylli viðmið WCAG 2.1 á stigi AA. Sem opinber aðili fylgir ÍSOR lögum nr. 84/2019 um aðgengi að vefsvæðum og smáforritum opinberra aðila.
- Merkingarbært HTML og rétt stigskipting fyrirsagna.
- Full notkun með lyklaborði og sýnilegur focus-rammi.
- Tengill til að stökkva beint í meginmál efst á hverri síðu.
- Nægileg birtuskil og texti sem skalast án þess að efni tapist.
- Lýsandi alt-textar á myndefni og merkingar á gagnvirkum þáttum.
Ábendingar og aðstoð
Þrátt fyrir þetta getur efni stundum verið ekki að fullu aðgengilegt. Ef þú rekst á aðgengishindrun, eða þarft efni á öðru formi, sendu okkur ábendingu á info@isor.is og við bregðumst við eins fljótt og auðið er.