Tilgangur borunar er margvíslegur og getur farið eftir umhverfis- eða árangurssjónarmiðum. Borholur eiga það sameiginlegt að dýpi þeirra er gjarnan gefið upp í metrum hérlendis en víddin oftast í tommum.
Gerðir borholna
- Vinnsluhola — boruð til að afla heits vatns eða gufu.
- Háhitahola — vinnsluhola til að ná í gufu til rafmagnsframleiðslu.
- Lághitahola — vinnsluhola til að afla heits vatns fyrir hitaveitu.
- Niðurdælingarhola — hola til að jarðsetja vatn að nýju.
- Rannsóknarhola — boruð í rannsóknarskyni.
- Hitastigulshola — boruð til að ákvarða hitastigul.
- Kjarnahola — sýnatökuhola boruð með demantskrónu.
- Stefnuboruð hola — boruð lóðrétt í upphafi en síðan beint að ákveðnu marki.