ÍSOR er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, en starfar á viðskiptalegum grundvelli á samkeppnismarkaði. ÍSOR er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki heims í rannsóknum og jarðvísindaþjónustu við jarðhitaiðnaðinn og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt. Jafnframt hefur ÍSOR verið leiðandi á Íslandi í rannsóknum á jarðfræðilegri byggingu hafsbotnsins kringum landið.
ÍSOR og forverar þess hafa í hartnær 80 ár verið meðal leiðandi aðila í þróun þeirrar tækni sem gert hefur Ísland að einu fremsta ríki heims í nýtingu jarðhita og útvegað Íslendingum orku á mun lægra verði en hægt hefði verið með öðrum orkugjöfum. ÍSOR stundar margvíslegar þverfaglegar rannsóknir og veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði jarðhita og jarðvísinda og annast kennslu í jarðhitafræðum.
Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.
Laus störf
Engin laus störf eru auglýst um þessar mundir. ÍSOR tekur þó ávallt við almennum umsóknum frá áhugasömu og hæfu fólki.