
2013–2016
Þrjú þátttökulönd: GEUS-Danmörk, ÍSOR-Ísland, LTU-Svíþjóð.
Verkefnisstjóri hjá ÍSOR: Anett Blischke.
http://norden.diva-portal.org/smash/get/diva2:1066963/FULLTEXT02.pdf
Markmið verkefnisins var að auka skilning og skilgreina tengsl jarðlaga- og jarðhniks við stór innskotskerfi og jarðhita málmmyndunum þeim tengdum á NA Jameson Land Basin svæðinu í Austur Grænlandi.
Hlutverk ÍSOR er einkum þríþætt:
- Kortleggja jarðlög og uppbyggingu þeirra á grundvelli hljóðendurvarpsmælinga.
- Vinna að þrívíðu hugmyndalíkani um jarðskorpu og setlög af svæðinu.
- Bera saman jarðlög á austurströnd Grænlands og Jan Mayen hryggnum með tilliti til sameiginlegs uppruna og opnunar úthafsins þarna á milli.