Verkefni
Verkefni
Dæmi um rannsóknaverkefni okkar, í vinnslu og lokið.

COMPASS – fóðrun og steypun djúpborhola
ON Power
Þróun og prófanir á fóðrunar- og steypuaðferðum sem standast öfgaaðstæður í háhitaholum, m.a. fyrir IDDP-3 djúpborunina.
EMODnet – evrópskt hafsbotnsgagnanet
EuroGeoSurveys
Samræming og miðlun dreifðra jarðfræðigagna af hafsbotni um sameiginlega gátt; ÍSOR er fulltrúi Íslands í EuroGeoSurveys og NAG.
EPOS – innviðir fyrir jarðvárgögn
Veðurstofa Íslands
Uppbygging rafrænna innviða fyrir jarðfræði- og eldfjallagögn í samvinnu við Veðurstofuna, samþætt miðlægri þjónustu EPOS ERIC.
GSEU – jarðfræðiþjónusta fyrir Evrópu
EuroGeoSurveys
Samræmd jarðfræðiþjónusta þvert á Evrópu sem styður orku- og loftslagsumskipti með stöðluðum upplýsingum um undirlag.

NASPMON – náttúruleg skjálftavirkni við jarðhitaleit
Czech Academy of Sciences
Íslensk-tékknesk samvinna um vöktun örskjálfta sem leitar- og vöktunartæki fyrir jarðhitavinnslu; átta jarðskjálftamælar streymdu rauntímagögnum í eldsumbrotunum á Reykjanesi.

GECO – samdráttur útblásturs jarðvarmavera
Orkuveita Reykjavíkur
Þróun hagkvæmra aðferða til að draga úr losun CO₂ og H₂S frá evrópskum jarðvarmaverum, byggt á Carbfix-aðferðinni og prófað í mörgum löndum.