Hoppa í aðalefni

Um ÍSOR

Innri stefnur

ÍSOR starfar eftir skýrum innri stefnum sem tryggja fagleg vinnubrögð, jafnrétti, öryggi og ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi.

Stefna gegn EKKO

ÍSOR vill skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólki líður vel. Einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni og hvers kyns annað ofbeldi (hér eftir nefnt EKKO) er ekki umborið á vinnustaðnum undir neinum kringumstæðum og eru allar ábendingar um slíkt teknar alvarlega.

Forvarnir

Í forvarnarstarfi er lögð áhersla á að skapa aðstæður og menningu sem eykur vellíðan starfsfólks og tryggir öryggi þeirra. ÍSOR hefur sett sér eftirfarandi viðmið um forvarnarstarf EKKO:

  • Greina og meta áhættuþætti í vinnuumhverfinu og hafa skriflega áætlun sem er kunnug starfsfólki um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem byggir á áhættumati í samræmi við vinnuverndarlög nr.46/1980.
  • Endurskoða skilvirkni aðferða með reglulegu millibili og að loknu EKKO máli ef slíkt kemur upp.
  • Þjálfa stjórnendur í EKKO verkferlum og sálrænni skyndihjálp. Stjórnendur þurfa auk þess að sækja endurmenntun á tveggja til þriggja ára fresti.
  • Fræða starfsfólk um einkenni, afleiðingar og verkferla EKKO á tveggja ára fresti eða eftir þörfum ef EKKO mál kemur upp á starfsstöð.

Hvað er EKKO?

ÍSOR styðst við skilgreiningar í reglugerð nr. 1009/2015, 3.gr. um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Einelti er endurtekin ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun gagnvart samstarfsfélögum. Birtingarmynd eineltis getur verið neikvæð og/eða ógnandi endurtekin samskipti sem valda vanlíðan hjá samstarfsmanni. Ekki er litið svo á að ágreiningur vegna verkefna, hagsmuna og mismunandi skoðana flokkist sem einelti. Hvernig viðtakandi tekur móðgun eða ótilhlýðilega háttsemi til sín er grundvallaratriði í sambandi við einelti. Því skiptir ekki öllu hvort að baki býr hugsunarleysi eða ákveðinn vilji til að auðmýkja. Hver og einn verður sjálfur að meta hvaða framkomu hann umber, frá hverjum og segja frá sé honum misboðið. Lögð er áhersla á að athæfi þess sem framkvæmir er síendurtekið og varir í lengri tíma ef um einelti er að ræða.

Kynbundin áreitni er hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt tilvik getur talist kynbundin áreitni ef það er alvarlegt.

Kynferðisleg áreitni er hvers kyns kynferðislega hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg. Daður telst ekki vera kynferðisleg áreitni nema um ítrekaða og óvelkomna hegðun sé að ræða.

Ofbeldi er hegðun sem getur leitt til líkamlegs eða sálræns skaða. Einnig er hér átt við hótun um ofbeldi, þvingun eða svipting frelsis viðkomandi.

Kynferðislegt ofbeldi er brot gegn kynfrelsi einstaklings sem lýst eru refsiverð í XXII. kafla almennra hegningarlaga.

Kynbundið ofbeldi er ofbeldi á grundvelli kyns sem leiðir til eða gæti leitt til líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir því verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi.

Jafnlaunastefna

Markmið jafnlaunastefnunnar er að tryggja að fyllsta jafnréttis sé gætt á milli kynja við launaákvarðanir hjá ÍSOR. Stefnan nær til alls starfsfólks ÍSOR.

Í jafnlaunastefnunni fellst að starfsfólk skal njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Með sömu kjörum er átt við að laun séu ákveðin á sama hátt fyrir öll kyn. Þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðunum skulu ekki fela í sér kynjamismunun. Laun eru í 9. tölulið, 2. gr. jafnréttislaga skilgreind sem almennt endurgjald fyrir störf og hvers konar frekari þóknun, bein og óbein, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða með öðrum hætti sem atvinnurekandi greiðir starfsmanni sínum fyrir vinnu hans.

ÍSOR hefur sett sér jafnlaunamarkmið og fylgir viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma. ÍSOR skuldbindur sig til að:

  • Kynna jafnlaunastefnuna á hverju ári fyrir starfsfólki ÍSOR.
  • Jafnlaunastefnan sé birt og aðgengileg almenningi á heimasíðu ÍSOR.
  • Skjalfesta, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins, ÍST 85, og ákvarða hvernig kröfur hans verða uppfylltar.
  • Sinna stöðugu eftirliti með jafnlaunakerfinu og tryggja þannig að eftir því sé unnið og framkvæma innri úttektir reglubundið ásamt rýni stjórnenda.
  • Bregðast við og vinna að umbótum ef sýnt er fram á að þörf sé fyrir þeim og að stefnu hafi ekki verið fylgt.
  • Stefna að því að ekki sé til staðar óútskýrður kynbundinn launamunur fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
  • Vinna eftir staðli um jafnlaunakerfi ÍST 85:2012.

Útgefið 24. ágúst 2021 Rýnd án breytinga 7. nóvember 2022 Rýnd án breytinga 18. október 2023 Rýnd án breytinga 5. mars 2025

Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun ÍSOR byggist á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Markmið laganna er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum allra kynja. Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni. Íslensk jafnréttislöggjöf tryggir þannig öllum jafna stöðu óháð kyni með tilliti til starfa og launa.

Með áætluninni eru stjórnendur og starfsfólk minnt á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kyns og að nýta beri til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kynjanna. Kynbundin mismunun er óheimil með öllu.

Jafnréttisáætlun er tæki til að ákveða markmið og eftirfylgni með jafnréttisstarfi fyrirtækisins. Jafnréttisáætlun Íslenskra orkurannsókna skal stuðla að betri nýtingu á hæfileikum og þekkingu starfsfólks. Starfsfólk fái notið eigin verðleika og hafi jöfn tækifæri til starfa og starfsþróunar óháð kyni. Mikilvægasti þátturinn í átt til jafnréttis er engu að síður sá að starfsfólk og stjórnendur vinni á markvissan hátt að því að tryggja jafna stöðu óháð kyni innan fyrirtækisins á öllum sviðum. Stjórnendur ÍSOR gæta að kynjasamþættingu við stefnumótun og áætlanagerð í daglegu starfi.

Meginmarkmið

  1. ÍSOR stefnir að jöfnu hlutfalli kynja í störfum innan fyrirtækisins.
  2. Passað verður upp á jafnvægi í hlutfalli kynja í ábyrgðarstörfum og í ráðum og nefndum innan ÍSOR. Á sama hátt skal gæta jafnréttis við úthlutun ábyrgðar og verkefna.
  3. Greiða skal sömu laun og bjóða sömu kjör fyrir sambærileg störf án tillits til kyns.
  4. Gera skal starfsfólki kleift að samræma atvinnu og fjölskyldulíf.
  5. Huga skal að ásýnd kynjanna og staðalímyndum innan fyrirtækisins.
  6. Starfsfólk skal eiga jafnan aðgang að endurmenntun og þjálfun, óháð kyni.
  7. ÍSOR líður ekki kynbundið ofbeldi, kynbundna eða kynferðislega áreitni, einelti eða mismunun starfsfólks né heldur kynbundna aulabrandara.
  8. Mikilvægt er að viðhorf til jafnréttismála sé jákvætt.

1. ÍSOR stefnir að jöfnu hlutfalli kynja í störfum innan fyrirtækisins.

Auglýsingar um laus störf skulu almennt höfða til allra kynja.

  • Aðgerð: Auglýsingar um laus störf skulu almennt höfða til allra kynja. — Mælikvarði: Auglýsingar yfirfarnar með kynjagleraugu að vopni. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.
  • Aðgerð: Gæta skal sérstaklega að jafnréttissjónarmiðum við nýráðningar eða tilfærslur í störfum innan ÍSOR. Þegar einstaklingar eru jafnhæfir þá skal nýta tækifæri til að rétta hlut þess kyns sem á hefur hallað. — Mælikvarði: Farið yfir hlutfall kynja í nýráðningum og tilfærslum í starfi. Mæling á fjölda starfsmanna skipt eftir starfsheitum og kyni. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

2. Gætt er að hlutfalli kynja hvað varðar setu í ráðum og nefndum innan ÍSOR. Eins skal gæta jafnréttis hvað varðar úthlutun ábyrgðar og verkefna.

  • Aðgerð: Gæta skal jafnréttis hvað varðar úthlutun ábyrgðar og verkefna og þátttöku starfsfólks í starfshópum og nefndum. — Mælikvarði: Samsetning allra nefnda, ráða og verkefnahópa skal skoðuð með tilliti til kynjahlutfalls. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

3. Greiða skal sömu laun og bjóða sömu kjör fyrir jafnverðmæt störf án tillits til kyns.

Þess verði sérstaklega gætt að starfsfólk fái sömu laun fyrir jafn verðmæt störf og sambærilega frammistöðu óháð kyni í samræmi við 9. tölul. 2.gr. jafnréttislaga. Launaákvarðanir skulu endurspegla starf, ábyrgð, vinnuframlag og hæfni viðkomandi starfsfólks og vera í samræmi við kjarasamninga. ÍSOR vinnur eftir staðli um jafnlaunakerfi ÍST 85:2012 og er með jafnlaunavottun og skuldbindur sig til að viðhalda henni.

  • Aðgerð: Starfsfólki eru greidd sömu laun fyrir sambærilega frammistöðu í sömu störfum. Launaákvarðanir skulu endurspegla starf, ábyrgð, vinnuframlag og hæfni viðkomandi. — Mælikvarði: Mæling á launum og hlunnindum borin saman milli kynja hjá starfsfólki í sambærilegum störfum. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

4. Gera skal starfsfólki kleift að samræma atvinnu og fjölskyldulíf.

Sveigjanleiki í skipulagningu á vinnu og vinnutíma verði til staðar þannig að jafnvægis sé gætt milli vinnu og fjölskyldulífs. Sveigjanlegt starfshlutfall og fjarvinna gætu hentað fyrirtækinu og starfsfólki þess. Starfsfólki sé jafnframt auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- eða foreldraorlof, t.d. með því að bjóða upp á hlutastarf, fjarvinnu og/eða sveigjanlegan vinnutíma.

  • Aðgerð: Sveigjanleiki í skipulagningu á vinnu, starfshlutfalli, fjarvinnu og vinnutíma sé til staðar. — Mælikvarði: Mæling á fjölda starfsfólks eftir kyni sem er í störfum sem bjóða upp á sveigjanlegan vinnutíma. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

5. Huga skal að ásýnd kynjanna og staðalímyndum innan fyrirtækisins.

Gæta skal þess að starfsfólk sé sýnilegt í kynningarefni og auglýsingum ÍSOR sem og á opinberum vettvangi óháð kyni.

  • Aðgerð: Þess skal gætt að ásýnd kynja sé jöfn á ráðstefnum, í fjölmiðlum, í kynningarefni, á heimasíðu og í auglýsingum. — Mælikvarði: Kynjahlutföll mæld í skýrslu frá Fjölmiðlavaktinni, auglýsingar og kynningarefni yfirfarið. — Ábyrgð: Sviðsstjórar — Tímarammi: Tekið út í apríl á hverju ári.

6. Starfsfólk skal eiga jafnan aðgang að endurmenntun og þjálfun.

Starfsfólk fái jafna möguleika til að þroskast í starfi og auka þekkingu sína, óháð kyni. Hvatt verði til nýtingar réttar á endurmenntun sérstaklega hjá kyni sem á hallar.

  • Aðgerð: Starfsfólki sé auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- eða foreldraorlof. — Mælikvarði: Tekinn saman fjöldi starfsfólks sem fer í hlutastarf, notar sveigjanlegan vinnutíma eða fjarvinnu eftir slíkt orlof. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.
  • Aðgerð: Hvatt verði til nýtingar réttar til endurmenntunar. — Mælikvarði: Könnun á hvernig rétturinn til endurmenntunar er nýttur. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

7. ÍSOR líður ekki kynbundið ofbeldi, kynbundna eða kynferðislega áreitni, einelti eða mismunun starfsfólks.

ÍSOR hefur sett sér forvarnar- og viðbragðsáætlun fyrir starfsfólk sitt sem er að finna á innri vef ÍSOR.

  • Aðgerð: Stjórnendur geti greint og brugðist við einelti, áreitni og/eða ofbeldi meðal starfsfólks. — Mælikvarði: Þjálfun fyrir stjórnendur. — Ábyrgð: Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu — Tímarammi: Á 3ja ára fresti (nóvember).
  • Aðgerð: Tryggja að stefnan og áætlunin sé kunnug starfsfólki. — Mælikvarði: Fræðsla fyrir starfsfólk. — Ábyrgð: Sviðsstjóri mannauðs og innri þjónustu — Tímarammi: Á 2ja ára fresti (janúar).
  • Aðgerð: Aðstoð óháðra aðila við meðferð mála. — Mælikvarði: Tilkynningaveita hjá óháðum aðila. Yfirlit frá aðilanum. — Ábyrgð: Forstjóri, Sviðsstjórar — Tímarammi: Í apríl á hverju ári.

8. Mikilvægt er fyrir fyrirtækið að viðhorf til jafnréttismála sé jákvætt.

Hugað verði að því að kynna jafnréttismál, efla vitund starfsfólks og veita fræðslu um þau innan fyrirtækisins.

  • Aðgerð: Aðgerðaráætlun jafnréttismála kynnt. — Mælikvarði: Kynning á innri vef og á sameiginlegum fundi með starfsfólki. — Ábyrgð: Jafnréttishópur — Tímarammi: Þegar breytingar á áætlun eru gerðar.
  • Aðgerð: Fræðsla um jafnréttismál. — Mælikvarði: Fyrirlestrar og umræður að þeim loknum. — Ábyrgð: Jafnréttishópur — Tímarammi: Á 3ja ára fresti í byrjun árs.

Eftirfylgni

Til að fylgja eftir markmiðum jafnréttisáætlunar er starfræktur jafnréttishópur hjá ÍSOR. Jafnréttishópurinn skipa þrír aðilar til tveggja ára í senn; einn úr hópi stjórnenda og tveir fulltrúar almenns starfsfólks kosnir í almennri kosningu. Hópurinn kemur saman a.m.k. tvisvar á ári og oftar ef þörf krefur. Hann skilar árlega skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála hjá ÍSOR. Hlutverk og verkefni hópsins er að:

  1. Vera ráðgefandi fyrir stjórnendur og starfsfólk.
  2. Viðhalda tölfræðilegum upplýsingum um þætti sem varða áætlunina.
  3. Leggja fram tillögur um sértækar aðgerðir í samræmi við markmið hennar og hafa frumkvæði að umræðum í yfirstjórn um jafnréttismál.
  4. Leggja fram tillögur að endurskoðun jafnréttisáætlunar fyrirtækisins sé þess þörf.
  5. Sjá til þess að reglubundið mat á árangri fari fram.
  6. Taka reglulega til skoðunar venjur, viðhorf og vinnuaðferðir hjá ÍSOR.
  7. Taka við ábendingum starfsfólks um hvaðeina sem varðar jafnréttismál.
  8. Jafnréttishópur skal kynna starfsfólki ÍSOR þessa áætlun og málefni tengd jafnrétti kynjanna einu sinni á ári. Nýju starfsfólki ber að kynna jafnréttisáætlunina og hún gerð sýnileg á heimasíðu fyrirtækisins.

Endurskoðað 11. nóvember 2022 Rýnd án breytinga 18. október 2023 Uppfærð undir lið 3. þann 21. október 2025 í samræmi við ábendingu frá Jafnréttisstofu.

Gildistími 21.10.2025 – 20.10.2028

Siðareglur ÍSOR

ÍSOR heiðrar leiðbeiningar Sameinuðu Þjóðanna, UN Global Compact, um tíu meginmarkmið um ábyrga viðskiptahætti.

ÍSOR starfar með virðingu fyrir umhverfinu og stuðlar að sjálfbærri nýtingu jarðfræðilegra auðlinda. Við skuldbindum okkur til að þróa umhverfisvænar starfshættir og tækni með velferð samfélagsins í huga.

ÍSOR viðheldur verðmætri sérfræðiþekkingu á náttúru- og jarðfræðilegum auðlindum, fenginni í gegnum rannsóknir á jarðvísindum og tækniþróun.

Öryggi, heilsa og vellíðan starfsmanna okkar eru í forgangi. Við stuðlum að öruggu og heilbrigðu vinnuumhverfi þar sem bæði líkamleg og andleg heilsa eru í fyrirrúmi.

Starfsfólk ÍSOR virða mannréttindi og fordæma öll brot á þeim.

Starfsfólk ÍSOR vinna gegn spillingu og hvorki þiggja né leita sér gjafa eða hlunninda sem gætu talist greiði eða umbun fyrir sérstaka þjónustu.

Starfsmannastefna

Meginverðmæti Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) er fólgið í kunnáttu starfsfólks til að leysa þau viðfangsefni sem ÍSOR er falið samkvæmt lögum. Starfsfólk ÍSOR og forvera þess hefur síðan 1945 byggt upp einstæða þekkingu á jarðhita, eðli hans og aðferðum til nýtingar. Þessi kunnátta hefur skipað ÍSOR í fremstu röð þeirra rannsóknastofnana og fyrirtækja sem starfa á alþjóðavettvangi og stunda rannsóknir, veita ráðgjöf og þjónustu á sviði jarðhita.

Starfsmannastefna ÍSOR miðar að því að fyrirtækið verði áfram í fararbroddi á sínu sviði. Helstu þættir hennar eru:

1. Að hafa jafnan til reiðu öflugan hóp starfsfólks sem er fært um að leysa af hendi betur en aðrir þau verkefni sem ÍSOR tekur að sér. Við val á starfsfólki eru eftirtaldir liðir mikilvægir:

  • Góð og hagnýt menntun sem fellur að starfsemi ÍSOR.
  • Vilji og geta til að vinna í hópi.
  • Lipurleiki í samskiptum.
  • Áreiðanleiki og vilji til að læra og miðla þekkingu.
  • Dugnaður og framtakssemi ásamt sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.

2. Bjóða starfsfólki upp á aðlaðandi vinnuumhverfi þar sem tekið er tillit til þarfa hvers starfsmanns og fjölskyldu hans. Það felur m.a. í sér að:

  • Jafnræði ríki óháð kyni, aldri, þjóðerni, kynþætti, trú, stjórnmálaskoðunum og öðrum þáttum sem aðgreinir fólk í hópa og unnið sé eftir samþykktri jafnréttisáætlun.
  • Bjóða upp á sveigjanlegan vinnutíma og breytilegt starfshlutfall í tíma þannig að starfsfólki líði vel á vinnustað og tekið sé tillit til fjölskylduaðstæðna starfsfólks.
  • Gefa góðan fyrirvara við mönnun verkefna sem krefjast yfirvinnu og/eða fjarvista frá heimili.
  • Sjá til þess að nýju starfsfólki líði vel í starfi, það fái strax viðeigandi starfsþjálfun og finni samhljóm við fyrirtækið og starfsemi þess.
  • Veita möguleika til símenntunar og þróunar í starfi.
  • Starfsfólk fái áhugaverð viðfangsefni sem fullnægi faglegum og vísindalegum metnaði þeirra.
  • Gagnkvæm virðing og traust ríki milli allra starfsmanna.

3. Stuðla að velgengni og góðum árangri starfsfólks á vinnustaðnum. Það felur m.a. í sér að:

  • Allt starfsfólk hafi starfslýsingar, ábyrgð þeirra sé skýr sem og hlutverk þess innan fyrirtækisins.
  • Ýta undir sjálfstæði, sjálfsaga og skipuleg vinnubrögð starfsfólks.
  • Starfsfólk fái reglulega að vita hvernig það stendur sig í starfi þar sem hvatning og uppbyggileg gagnrýni er höfð að leiðarljósi.
  • Starfsfólk taki virkan þátt í mótun vinnuumhverfis og ákvarðanaferli hjá ÍSOR.
  • Hafa góða upplýsingaveitu innan fyrirtækisins.
  • Gera starfsfólk meðvitað um samhengi frammistöðu einstaklingsins og afkomu ÍSOR.

4. Stuðla markvisst að öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks á vinnustað með því að:

  • Tryggja að starfsfólk fylgi verklagsreglum í hvívetna.
  • Hverjum starfsmanni sé búin starfsaðstaða sem tryggir hentuga líkamsstöðu við vinnu og valdi ekki álagseinkennum.
  • Virða reglur um skipulag vinnutíma og forðast óhóflegt vinnuálag.
  • Líða ekki fordóma, mismunun, einelti, áreitni og ójafnræði innan fyrirtækisins.
  • Fylgja stefnu og áætlun um viðbrögð við einelti, áreitni og/eða ofbeldi. Það er stefna fyrirtækisins að tekið sé hratt og vel á atvikum ef slíkt kemur upp.
  • Starfsfólk hafi aðgang að hollu og næringarríku fæði.
  • Stuðla að öflugu félagslífi innan fyrirtækisins.
  • Hvetja starfsfólk og styrkja til líkamsræktar.

Upplýsingaöryggi

ÍSOR hefur að leiðarljósi að nýta upplýsingatækni í starfsemi sinni, þ.m.t. varðveislu, úrvinnslu og miðlun gagna.

Það verður gert með því að:

  • fylgjast með og tileinka sér nýjungar á sviði upplýsingatækni
  • verkkaupar ÍSOR og samstarfsaðilar njóta góðrar þjónustu og ráðgjafar í upplýsingatæknimálum
  • val á hugbúnaði tekur mið af því að hann uppfylli óskir og þarfir notenda, sé hagkvæmur og samþættanlegur öðrum upplýsingatæknilausnum
  • gögn sem ÍSOR aflar eða býr til, í eigin þágu eða fyrir verkkaupa sína, eru skráð og varðveitt á öruggan og ábyrgan hátt og á stöðluðu, rafrænu og aðgengilegu formi eftir því sem það er unnt (með gögnum er hér átt við frumgögn, lýsigögn, reiknuð og afleidd gögn)
  • skýrt er kveðið á um eignarhald og umráðarétt á þeim gögnum sem ÍSOR aflar, býr til og varðveitir
  • gögn eru ekki afhent þriðja aðila til skoðunar, notkunar eða útgáfu nema tilskilin leyfi frá eigendum gagnanna séu fyrir hendi

Gæðastefna

ÍSOR er fyrirtæki í eigu ríkisins sem samkvæmt lögum selur sérhæfða þekkingu á sviði náttúrufars, orkumála og auðlindamála ásamt ráðgjöf og þjónustu byggða á henni. Jafnframt er ÍSOR ein helsta rannsóknarstofnun heims á sviði jarðhita. ÍSOR er, samkvæmt lögum, ætlað að starfa á samkeppnismarkaði, án opinberra fjárveitinga en arði af starfseminni skal varið til að auka rannsóknarfærnina.

Það er stefna ÍSOR að tryggja viðskiptavinum sínum skilvirka þjónustu og áreiðanlega ráðgjöf sem byggð er á bestu fáanlegri tækni og þekkingu á hverjum tíma og tekur tillit til þarfar fyrir vernd og endurbætur í umhverfismálum.

Það felur m.a. í sér að:

  • Öll þjónusta ÍSOR sé í hæsta gæðaflokki.
  • Öll ráðgjöf ÍSOR, mælingar og niðurstöður sem afhentar eru verkkaupa eru vandlega unnar, yfirfarnar og sannprófaðar.
  • Verkkaupa er þjónað hratt, af fagmennsku, ábyrgð og sanngirni.
  • Hafa tiltækt starfsfólk og sérfræðinga í fremstu röð á þeim fagsviðum sem ÍSOR starfar.
  • Stunda rannsóknir og taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi til að styrkja þekkingarstoðir ÍSOR.
  • ÍSOR býr yfir tækjum og öðrum búnaði sem tryggir áreiðanlegar mæliniðurstöður, viðheldur þeim og fylgir eftir þróun í rannsóknatækni.
  • Starfsemi ÍSOR uppfyllir kröfur verkkaupa og opinberra aðila, m.a. um gæði, öryggi og hollustu.
  • Beitt er aðferðum gæðastjórnunar samkvæmt ISO-9001 á sem flestum sviðum starfseminnar og stöðugt unnið að umbótum starfseminnar.

Dags. 23.08.2024 Útg.2

Umhverfisstefna

Markmið umhverfisstefnu ÍSOR er að fyrirtækið verði leiðandi á sínu sviði og hafi með starfsemi sinni jákvæð áhrif á þróun umhverfismála hér á landi. Til að ná því takmarki beitum við aðferðafræði ISO 14001 staðalsins á sem flesta þætti í rekstrinum.

Þetta felur í sér að:

  • við þekkjum umhverfisáhrif af starfsemi ÍSOR og reynum að lágmarka þau
  • við tryggjum að öllum lagakröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt og setjum okkur strangari kröfur þar sem við á
  • við stuðlum að eflingu umhverfisvitundar starfsfólks og áhuga þeirra á mikilvægi umhverfismála með reglulegri þjálfun og fræðslu
  • við leggjum áherslu á góða umgengni við umhverfið, meðal annars með því að endurnota og endurvinna það sem fellur til í rekstri eins og hægt er en farga öðru á viðeigandi hátt
  • við leggjum áherslu á að nota vistvæna samgöngumáta eins og unnt er, bæði á ferðum í og úr vinnu og á ferðum á vegum ÍSOR. Jafnframt drögum við úr ferðum með því að nota fjarfundarbúnað eftir föngum.
  • við förum að kröfum ISO 14001 staðalsins og bætum stöðugt virkni umhverfisstjórnunarkerfisins

Öryggisstefna

Stefna ÍSOR er að tryggja öllum starfsmönnum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Markmiðið er slysalaus vinnustaður og að enginn starfsmaður bíði heilsutjón af starfi sínu hjá fyrirtækinu. Til að ná þessu markmiði ætlast stjórnendur fyrirtækisins til þess að allir starfsmenn vinni í samræmi við þessa stefnu. Í rekstri fyrirtækisins er gert ráð fyrir að öllum kröfum laga og reglna sé fylgt og sífellt sé unnið að endurbótum sem stuðla að auknu öryggi starfsmanna, samstarfsaðila og viðskiptavina fyrirtækisins. Leiðir ÍSOR að þessu markmiði eru eftirfarandi:

  • Að skapa starfsmönnum, þjónustuaðilum og öðrum sem erindi eiga við fyrirtækið öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
  • ÍSOR leggur starfsmönnum til aðstöðu, tæki og búnað sem er í góðu ástandi og uppfyllir öryggiskröfur.
  • Að sjá til þess að búnaður fyrirtækisins sé skoðaður og prófaður í samræmi við gildandi lög og reglur.
  • Að fræða og þjálfa starfsmenn á sviði öryggis- og vinnuverndarmála.
  • ÍSOR framkvæmir áhættumat fyrir fyrirtækið og tryggir að slíkt mat sé gert í hvert sinn sem tekinn er í notkun nýr búnaður og/eða nýtt verklag, sem getur skapað hættu fyrir starfsmenn.
  • ÍSOR kemur upplýsingum um kröfur fyrirtækisins um öryggis- og heilbrigðismál með markvissum hætti til viðskiptavina og þjónustuaðila.
  • Stjórnendur ÍSOR taka virkan þátt í skipulagi og framkvæmd öryggis- og heilbrigðismála fyrirtækisins.
  • Að sjá til þess að starfsmenn ÍSOR fái nauðsynlega þjálfun til viðkomandi starfa og að til séu verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar sem nýtast þeim.
  • ÍSOR lætur reglulega gera innri úttektir til að ganga úr skugga um virkni kerfsins.