Knowledge of the geology and environment of the seabed is a prerequisite for making sensible use of the resources found there. Seabed resources include construction materials, metals, geothermal heat and oil or gas deposits.

Hjá ÍSOR starfar hópur jarðfræðinga, jarðeðlisfræðinga og eðlisfræðinga sem hefur á undanförnum áratugum byggt upp sérfræðiþekkingu í öflun og túlkun gagna af hafsbotni. Meðal verkefna má nefna ráðgjöf til stjórnvalda varðandi skilgreiningar landgrunnsins utan 200 sjómílna. ÍSOR hefur tekið þátt í rannsóknum á olíu og gasi fyrir Norðurlandi og verið ráðgjafi við undirbúning sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna.
Þjónusta ÍSOR í hafsbotnsrannsóknum – úrvinnsla og túlkun
- Kortlagning
- Setlagarannsóknir
- Þyngdarmælingar
- Segulmælingar
- Endurkastsmælingar
- Bylgjubrotsmælingar
- Fjölgeislamælingar
Landgrunnsmál
ÍSOR veitir stjórnvöldum vísindalega ráðgjöf um afmörkun landgrunns Íslands. Um er að ræða rannsóknarvinnu, gagnaöflun og túlkun gagna. Auk þess hafa sérfræðingar ÍSOR tekið þátt í að kynna kröfur Íslendinga fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Fræðast má nánar hér um landgrunnskröfur Íslendinga.
Olíurannsóknir
ÍSOR veitir stjórnvöldum sérfræðiaðstoð við undirbúning á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis. Verkið er tvíþætt.
- Að koma upp gagnasafni um landgrunn Íslands vegna leyfisveitinga. Gagnasafnið inniheldur m.a. endurkastsmæligögn úr setlagarannsóknum til olíuleitar, auk gagna úr ýmiss konar vísindaleiðöngrum. Þetta gagnasafn var nýtt til kynningar á svæðinu í svokallaðri Landgrunnsvefsjá sem var aðgengileg fram til ársins 2019.
- Túlkun á mæligögnum með tilliti til líklegra auðlinda og leggja mat á hvar líkur eru á að finna olíu eða gas.
Kortlagning hafsbotnsins
ÍSOR er virkur þátttakandi í rannsóknarverkefnum styrktum af innlendum jafnt sem erlendum sjóðum eða orku- og olíufyrirtækjum. Hér má finna lista yfir samstarfsverkefni jarðfræðistofnana í Evrópu sem snúa að hafsbotnsrannsóknum:
- Kortabók og stafrænn gagnagrunnur um jarðfræði Norðaustur-Atlantshafsins (NAGTEC, Northeast Atlantic Geoscience TECtonostratigraphic Atlas).
- Kortlagning landgrunnssvæða (EMODnet, Europian Marin Observation Data Network).
- Kortlagning jarðlaga og málmauðlinda á austurströnd Grænlands (NORDMIN, Crustal Structure and Mineral Deposit Systems: 3D-modeling of base metal mineralization in Jameson Land and nickel mineralization in Disko-Nuussuaq) (Greenland).
Brochures
Iceland Offshore Exploration (PDF)


